spot_img
HomeFréttirJón Halldór: Ekki í boði að vera þreyttur núna

Jón Halldór: Ekki í boði að vera þreyttur núna

10:32
{mosimage}

(Jón Halldór Eðvaldsson) 

Keflavík og Haukar mætast í sínum öðrum leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst kl. 19:15. Keflavík leiðir einvígið 1-0 eftir sigur í framlengdum leik í Toyotahöllinni á laugardag. Þetta kemur fram á www.vf.is  

Rannveig Kristín Randversdóttir snéri sig illa á ökkla í fyrsta leik liðanna en verður hún með í kvöld?,, Ég veit ekki með Rannveigu. Útlitið var ekki gott í gærkveldi,” sagði Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflvíkinga í samtali við Víkurfréttir. ,,Við skulum sjá til í dag með Rannveigu, hún fer í sjúkraþjálfun í dag og þá fáum við úr skorið með stöðuna á henni.” 

Hvernig leggst leikurinn annars í þjálfarann, telur hann að þreyta sér farin að gera vart við sig hjá liðunum?
,,Leikurinn í kvöld leggst vel í mig. Leikurinn á laugardaginn var stórskemmtilegur og hef ég ekki trú á að neitt annað verði uppá teningnum í kvöld. Ég veit ekki með þreytu, það er ekki í boði að vera þreyttur núna. Þetta er sá tími sem að allir leikmenn bíða eftir og menn verða bara þreyttir eftir úrslitakeppnina. Ég tel að liðið hjá mér sé í góðum gír fyrir kvöldið og okkur hlakkar bara til,” sagði Jón Halldór. 

Haukar-Keflavík
Leikur 2, 17. mars 2008
Ásvellir, Hafnarfjörður
 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -