spot_img
HomeFréttirKomast Keflavík og KR áfram: Úrslitakeppni 1. deildar af stað

Komast Keflavík og KR áfram: Úrslitakeppni 1. deildar af stað

11:14
{mosimage}

(Hildur Sigurðardóttir hefur leikið fantavel gegn Grindavík í úrslitakeppninni) 

Tveir stórleikir verða í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld þegar Keflavík tekur á móti Haukum í Toyotahöllinni og KR fær Grindavík í heimsókn í DHL-Höllina. Báðir leikirnir hefjast kl. 19:15. Takist Keflavík og KR að hafa sigra í kvöld eru liðin komin í úrslit og mætast þá í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Ef KR vinnur Grindavík í kvöld verða Vesturbæingar fyrstu nýliðarnir í 13 ár til að leika um Íslandsmeistaratitilinn. Það gerðu Blikar síðast árið 1995. 

Rannveig Kristín Randversdóttir leikmaður Keflavíkur meiddist á ökkla í fyrsta leik Keflavíkur og Hauka og lék ekkert með í öðrum leiknum að Ásvöllum. Búist er við því að hún reyni að hlaupa með Keflavík í kvöld en liðið hefur mátt sætta sig við töluverð áföll þennan veturinn og voru fyrir á meiðslalista þær Bryndís Guðmundsdóttir og Marín Rós Karlsdóttir og Svava Ósk Stefánsdóttir hefur ekkert leikið með þar sem hún er með barni. 

Grindvíkingar hafa átt fá svör við grimmum varnarleik KR að undanförnu og hefur Hildur Sigurðardóttir, fyrrum leikmaður Grindavíkur, farið á kostum í báðum leikjunum gegn Grindavík í úrslitakeppninni. 

Smellið hér til að lesa góða grein blaðamannsins Óskars Ófeigs Jónssonar um leikina í úrslitakeppni kvenna í kvöld. Greinin birtist í Fréttablaðinu í dag og á visir.is  

Þá hefjast einnig herlegheitin í 1. deild karla þar sem FSu, Haukar, Ármann og Valur munu berjast um eitt laust sæti í Iceland Express deild karla á næstu leiktíð. 

FSu tekur á móti Haukum í Iðu á Selfossi kl. 19:15 en Valsmenn fá Ármann í heimsókn í Vodafonehöllina kl. 20:00.

Fréttir
- Auglýsing -