10:00
{mosimage}
Einar Ólafsson og Kritján Ágústsson sitjandi, þeim á hægri hönd er Torfi Magnússon
Valsmenn buðu mörgum gömlum kempum á leikinn gegn Ármanni þegar liðin áttust við í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í 1. deild. Þar voru saman komin mörg kunnuleg andlit úr körfuboltaheiminum og þar á meðal Kristján Ágústsson sem var í Bikarmeistara liði Vals árið 1983.
Kristján á son í Valsliðinu í dag, Guðmund Kristjánsson en hann hefur spilað stórt hlutverk fyrir liðið í vetur. Kristjáni leyst ágætlega á leikinn og sagði strákana verða að sýna það að þeim langi að fara upp í úrvalsdeild. Það var ekki langt í svar þegar hann var spurður út í hver lykilinn að sigri gegn Ármanni væri. „Það er fyrst og fremst vörnin, stíga vel út og fara í fráköstin. Það er alltaf vörnin sem gildir í þessum leikjum. Ef þeir spila góða vörn þá kemur þetta.” Hann hafði trölla trú á syni sínum en sagði hann þó „þurfa að sýna meira áræði í sókninni, hann er fínn í vörninni, spilar góða vörn, mikið á ferðinni en það vantar kannski, ef svo má segja, græðgina sem við höfðum þessi gömlu karlar.”
Texti og mynd: Gísli Ólafsson