Isabella Ósk Sigurðardóttir og South Adelaide Panthers lögðu Central District Lions í dag í áströlsku NBL1 deildinni, 78-52.
South Adelaide eru eftir leikinn í öðru sæti miðhluta deildarinnar með 11 sigra og 3 töp það sem af er tímabili.
Á 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Isabella 8 stigum, 13 fráköstum, 2 stoðsendingum og 5 stolnum boltum, en hún var framlagshæst í liði South Adelaide.
Næsti leikur Isabellu og South Adelaide er þann 16. júlí gegn North Adelaide Rockets.