11:00
{mosimage}
Úrslitakeppnin á Ítalíu heldur áfram í dag og getur Siena komist áfram í undanúrslit ef þeir leggja Upim Bologna að velli en þeir eru 2-0 yfir. Leikið verður á heimavelli meistaranna í Siena.
Seinni leikur dagsins er milli Montegranaro og AJ Milano og er staðan 1-1 í einvíginu.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í undanúrslit.