Breiðablik hefur samið við Sanja Orozovic um að leika með félaginu á komandi tímabili í Subway deild kvenna.
Sanja kemur til Blika frá deildarmeisturum Fjölnis, en áður hefur hún einnig leikið fyrir KR, Skallagrím og Breiðablik í deildinni. Með deildarmeisturum Fjölnis skilaði hún 18 stigum, 8 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.