Landslið Bandaríkjanna hóf æfingar nú í síðustu viku fyrir Ólympíuleikanna í sumar í Peking. Liðið er skipað nánst öllum sterkustu leikmönnum sem völ var á og því ekki árennilegt að þurfa að mæta þessum ofur stjörnum í sumar. Liðið mun æfa í Las Vegas og leika æfingaleik gegn Canada þann 25. júlí. Æfingaleikir verða svo í Macao í suðurhluta Kína gegn Tyrklandi og Litháen. En gera má ráð fyrir að Bandaríkjamenn taki Litháa nokkuð auðveldlega eftir að íslenska liðið verður búið að þreyta þá eftir leiki liðanna á næstunni. Annars er lið USA skipað eftirtöldum.