16:13
{mosimage}
(Helena var stigahæst hjá landsliðinu í dag)
Kvennalandslið Íslands í körfuknattleik lék í dag sinn fyrsta leik á Norðurlandamótinu sem fram fer í Gentofte í Danmörku og mátti þar sætta sig við nokkurn skell gegn Svíþjóð. Lokatölur leiksins voru 47-81 Svíum í vil en Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu í dag með 17 stig, 4 stoðsendingar og 3 fráköst.
Næstar Helenu í stigaskorinu voru þær Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir báðar með 6 stig en Signý tók auk þess 4 fráköst í leiknum. Skotnýting íslenska liðsins var ekki sú besta en liðið brenndi t.d. af öllum 8 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik og hittu aðeins samanlagt úr 1 af 13 þriggja stiga skotum í leiknum. Louise Halvorsson var stigahæst í sænska liðinu í dag með 16 stig. Næsti leikur íslenska liðsins er á morgun gegn Norðmönnum kl. 16.45 að íslenskum tíma.