07:00
{mosimage}
(Meistarar Boston fá sigurverðlaun sín afhent á opnunardegi NBA)
Meistarar Boston Celtics í NBA-deildinni munu fá afhenta sigurhringi sína 28. október næstkomandi. En þá hefst keppnistímabilið í NBA með þremur leikjum.
Boston tekur á móti Cleveland, Chicago fá Milwaukee í heimsókn og silfurliðið L.A. Lakers taka á móti Portland í Staples Center.
Ásamt því að fá sigurhringi sína mun félagið hífa nýjasta meistarafánann í rjáfur TD Banknorth Garden en sigur Boston í sumar var 17. titill félagsins.
Mynd: AP