16:48
{mosimage}
(Hildur Sigurðardóttir var með 9 stig á 14 mínútum í dag gegn Danmörku)
Ísland tapaði fyrir Danmörku fimmta og síðasta leik sínum á Norðurlandamótinu sem fór fram í Danmörku. Eftir frábæra byrjun þar sem þær skoruðu fyrstu 10 stig leiksins náðu þær ekki að klára leikinn og töpuðu með átta stigum 68-76.
Ísland var nálægt sigri en misstu forystuna þegar sex mínútur voru eftir.
Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir með 23 stig en hún tók einnig 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Næst henni voru þær Hildur Sigurðardóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og María Ben Erlingsdóttir með 9 stig hver.
Mynd: [email protected]