15:47
{mosimage}
(Haukur Pálsson skoraði 14 stig fyrir Ísland í dag)
16 ára landslið Íslands mátti í dag sætta sig við ósigur gegn sterku liði
Svartfellinga á Evrópumótinu í B-deild sem fram fer í Sarajevo. Lokatölur leiksins
voru 68-85 Svartfellingum í vil en íslenska liðið leiddi 41-35 í hálfleik.
Haukur Helgi Pálsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 14 stig, 9 fráköst og 3
stoðsendingar og honum næstur kom Björn Kristjánsson með 12 stig og 4 stoðsendingar.
Svartfellingar komu tvíelfdir til leiks í síðari hálfleik og gerðu út um leikinn í
þriðja leikhluta en að honum loknum var staðan 49-69 fyrir Svartfjallalandi og fór
þriðji leikhluti því 8-34. Styrmir Gauti Fjeldsted átti fína spretti í upphafi og
gerði alls 8 stig en fékk snemma í síðari hálfleik sína fimmtu villu í íslenska
liðinu og varð frá að víkja.
Íslenska liðið hefur því tapað þremur leikjum á mótinu og unnið einn og mætir á
morgun liði Dana kl. 17:00 að íslenskum tíma.