15:30
{mosimage}
Eins og fram kemur á heimasíðu KKÍ er undirbúningurinn hafinn fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi sem fram fer á miðvikudaginn klukkan 19:15 í Laugardalshöll og í tilefni af því ætla landsliðsmenn að árita treyjur og plaköt.
Landsliðsmennirnir verða í Select sjoppunni sem er við Smáralindina á milli klukkan 17:00 og 19:00 í dag til að árita og gefa plaköt ásamt því sem nokkrir heppnir gestir fá landsliðstreyju.
Vífilfell og Freyja verða á staðnum og fá allir Powerade og Hrís sem koma og heilsa upp á landsliðsmennina.
Mynd: [email protected]