Enn berast tilkynningar um tvífara og í þetta skiptið er það Rúnar Ingi Erlingsson leikmaður Breiðabliks sem varð fyrir valinu. Áhugasamur lesandi benti okkur á að tvífari hans hafi fundist á Old Trafford um helgina. Ekki ómerkari maður en John O´Shea varnarmaður Manchester United. Kanna þyrfti í Íslendingabók og sjá bara hreinlega hvort O´Shea nafnið beri á góma þarna aftarlega í fjölskyldutrénu hans Rúnars.