spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin semur við Valencia til ársins 2024

Martin semur við Valencia til ársins 2024

Martin Hermannsson hefur framlengt samningi sínum við Valencia til næstu tveggja ára og er hann því samningsbundinn félaginu til 30. júní 2024. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Martin kom upphaflega frá Alba Berlin í Þýskalandi til Valencia árið 2020 og hefur síðan þá leikið 120 leiki fyrir félagið. Í þessum 120 leikjum hefur Martin verið einn af lykilleikmönnum liðsins, skilað 8 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -