Íslenska karlalandsliðið hefur leik á morgun í forkeppni Ólympíuleika 2024 með leik gegn heimamönnum í Tyrklandi. Leikurinn er sá fyrsti af þremur sem liðið leikur næstu daga í keppninni, en til þess að komast upp úr riðil sínum þar sem þeir eru ásamt Tyrklandi með Búlgaríu og Úkraínu þarf liðið að vera í efstu tveimur sætunum. Nái þeir því munu þeir leika undanúrslit og svo úrslitaleik í næstu viku um að komast áfram á næsta stig keppninnar.
Hérna er 12 leikmanna lið Íslands
Möguleikar Íslands á að tryggja sér farmiða á Ólympíuleikana í París
Karfan spjallaði við Baldur Þór Ragnarsson aðstoðarþjálfara Íslands um ferðalagið út til Istanbúl og hvaða möguleika Ísland eigi í leik morgundagsins gegn heimamönnum í Tyrklandi.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil