Haukur Davíðsson hefur framlengt samningi sínum við fyrstu deildar lið Hamars í Hveragerði.
Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gamall lék Haukur 26 leiki fyrir Hamar á síðustu leiktíð. Í þeim skilaði hann 4 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu að meðaltali í leik.