spot_img
HomeFréttirKeflavík rekur Clark

Keflavík rekur Clark

 
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Rahshon Clark, en hann hefur ekki þótt standa undir væntingum það sem af er tímabils. Frá því að Rahshon hóf æfingar með Keflavík, var ljóst að það var margt sem vantaði upp á hjá honum miðað við þann styrk sem Keflavíkurliðinu vantaði frá erlendum leikmanni. Þetta kemur fram á www.keflavik.is  
Honum var þó gefin lengri aðlögunartími til þess að bæta leik sinn, en þær betrumbætur hafa aldrei komið. Þar af leiðandi telur stjórn að skynsamlegast sé að segja upp samningi sínum við Rahshon og á heimasíðu félagsins er leikmanninum óskað velfarnaðar.
 
Stjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um nýjan kana sem mun fylla upp í skarð Rahshon og verður liðið því skipað alíslenskum leikmönnum. Ennfremur segir á Keflavíkursíðunni að það skuli einnig tekið fram að uppsögn þessi taki strax gildi og mun Rahshon því ekki spila með gegn KR á fimmtudaginn næstkomandi.
 
Clark lék átta deildarleiki með Keflavík og gerði að jafnaði 18,9 stig og 10,8 fráköst að meðaltali í leik en var vart skugginn af sjálfum sér í nágrannaslag Keflavíkur og Njarðvíkur í gærkvöldi þar sem Keflvíkingar fengu skell.
Fréttir
- Auglýsing -