spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSelfoss semur við sex leikmenn - Ísak, Arnaldur og Srdjan ganga til...

Selfoss semur við sex leikmenn – Ísak, Arnaldur og Srdjan ganga til liðs við félagið

Selfoss samdi á dögunum við sex leikmenn fyrir komandi átök í fyrstu deild karla.

Þrír þeirra, Ísar Freyr Jónasson, Arnar Geir Líndal og Sigmar Jóhann Bjarnason voru með liðinu á síðustu leiktíð og voru því að framlengja samninga sína.

Þá samdi liðið við tvo efnilega leikmenn, Ísak Júlíus Perdue frá Þór og Arnald Grímsson frá Vestra, ásamt því að semja við hinn serbneska Srdjan Stojanovic, en hann lék síðast á Íslandi fyrir Þór Akureyri í Subway deildinni.

Tilkynningar:

Srdjan, sem er 31 árs gamall, þekkir vel til á Íslandi en hann lék tvö tímabil með Fjölni í 1. deild , 2018-2020, og eitt tímabil með Þór Akureyri í efstu deild, 2020-2021. Seinna tímabilið með Fjölni skilaði Srdjan 20 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum á tæpum 33 mínútum. Með Þór Ak. í Dominósdeildinni ’20-’21 spilaði Srdjan einnig um 33 mínútur, í 26 leikjum, skoraði 15,6 stig, tók 4 sóknarfráköst og gaf 3 stoðsendingar að meðaltali, og var með rúmlega 40% skotnýtingu, jafnt utan sem innan þriggjastigalínunnar. Hann lék á Írlandi á síðasta tímabili.

Arnaldur Grímsson er alinn upp hjá Val. Arnaldur er á 20. aldursári og lék með Vestra í Subway deildinni í fyrra. Hann spilaði þar 10 mínútur, skoraði 3,4 stig og tók 3 fráköst að meðaltali í 21 leik. Arnaldur er öflugur framherji og mjög vaxandi og átti skínandi leiki þegar líða fór á tímabilið.

Ísak Júlíus Perdue er alinn upp hjá Þór í Þorlákshöfn. Hann er á 19. aldursári, hefur stundað nám í FSu og verið í körfuboltaakademíunni á Selfossi. Ísak var í sterkmum leikmannahópi Þórs í Subwaydeildinni í 27 leikjum. Hann leitar nú nýrra tækifæra og stærri áskorana með auknum spilatíma í 1. deildinni. Ísak er ekki hávaxinn en líkamlega sterkur og öflugur leikstjórnandi sem á framtíðina fyrir sér.

Sigmar Jóhann Bjarnason tekur sitt fjórða tímabil með Selfossliðinu. Sigmar verður seint fullmetinn í leikmannahópnum en hann var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili, 22 ára gamall. Sigmar spilaði um 11 mínútur að meðaltali í 23 leikjum í fyrra.

Arnar Geir Líndal mun leika sitt annað tímabil í Selfossbúningnum. Hann er 22 ára, setti 3 stig á um 12 mínútum að meðaltali í 23 leikjum í fyrra.

Ísar Freyr Jónasson er á 20. aldursári og kom til liðs við Selfoss frá KR í fyrra. Ísar spilaði 24 mínútur, skoraði 5 stig og tók 3 fráköst að meðaltali í 22 leikjum. Ísar var einnig í þjálfarateymi yngriflokka á Selfossi, vinsæll þjálfari og góð fyrirmynd. Hann er í æfingahóp U20 ára landsliðsins.

Fréttir
- Auglýsing -