Íslenska karlalandsliðið mun taka þátt í forkeppni fyrir Ólympíuleikana 2024 nú um helgina og í næstu viku. Fer liðið á átta liða mót í Tyrklandi þar sem aðeins eitt lið vinnur sér inn þátttöku í undankeppni leikanna.
Hérna er 12 manna lið Íslands fyrir leikina
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu fyrr í dag og spjallaði þar við Martin Hermannsson leikmann liðsins, sem ekki gat gefið kost á sér í verkefnið vegna skuldbindinga við félagslið sitt Valencia á Spáni.