Nýliðar ÍR í Subway deild kvenna hafa gengið frá ráðningu á Ara Gunnarssyni sem þjálfara liðsins. Ari kemur í stað Kristjönu Eir Jónsdóttur sem, eftir að hafa komið liðinu upp um deild, tók við deildarmeisturum Fjölnis á dögunum.
Ari er uppalinn Valsari, spilaði alla yngri flokka með Val og í mfl. 1989-1993. Ari spilaði einnig í úrvalsdeild með Skallagrími og Hamri og á að baki 20 ára feril sem leikmaður. Ari hefur þjálfað hjá fimm félögum í úrvalsdeild kvenna Hamar, Haukum, Val, KR og síðast hjá Skallagrími fyrir þremur árum.
Tilkynning:
Það er með mikilli gleði sem við ÍR-ingar tilkynnum nýjan meistaraflokksþjálfara kvenna. Í hádeginu í dag skrifaði Ari Gunnarsson undir 2 ára samning um þjálfun á liðinu sem vann sér inn sæti í Subway deild kvenna á nýliðnu tímabili.
„Við erum gríðarlega ánægð með að fá Ara til starfa til okkar og hjálpa okkur að festa liðið í sessi í Subway deild kvenna, það er ekki spurning að reynsla hans mun hjálpa félaginu, bæði við að efla innviðina í félaginu og að hjálpa okkur að taka næsta skref í baráttunni í Subway deildinni á næsta tímabili“ sagði Steinar Þór Guðjónsson formaður KKD ÍR við undirritun samnings við Ara í dag.
Ari býr yfir mikilli reynslu og hefur þjálfað víða m.a. lið Hamars, KR, Skallagríms, Vals og Hauka í efstu deild kvenna.
Í kjölfar undirritunar samnings í dag lét Ari hafa eftir sér að hann sé spenntur að taka fram þjálfaraspjaldið og taka þátt í því ævintýri sem nýtt íþróttahús félagsins í Mjóddinni mun bjóða upp á á næsta tímabili.