spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHlynur framlengir samning sínum við Stjörnuna

Hlynur framlengir samning sínum við Stjörnuna

Stjarnan hefur framlengt samningi sínum við Hlyn Bæringsson og mun hann leika með liðinu út næsta tímabil. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Hlynur hefur leikið með Stjörnunni síðan hann kom frá Svíþjóð tímabilið 2016-17, en á þeim tíma hefur hann í þrígang unnið bikarmeistaratitilinn með félaginu. Í 22 leikjum með félaginu á síðustu leiktíð skilaði Hlynur 8 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Tilkynning:

Hlynur Elías Bæringsson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna fyrir næsta tímabil.
Hlynur kom til Stjörnunnar úr atvinnumennsku í Svíþjóð fyrir tímabilið 2016-2017. Síðan þá hefur hann leikið 152 deildarleiki og 19 bikarleiki fyrir félagið og þrisvar hampað bikarmeistaratitli með Stjörnunni.

Fréttir
- Auglýsing -