Friðrik Ragnarsson sem þjálfað hefur Grindavík undanfarin 4 ár, hefur ákveðið að setja punktinn aftan við þennan kafla og hætta þjálfun Grindavíkurliðsins. Friðrik var búinn með samning sinn en vilji var af hálfu stjórnar Grindavíkur að hann héldi áfram með liðið. Þessi viðskilnaður er allur í mesta bróðerni. Frá þessu er greint á www.umfg.is
Á heimasíðu Grindavíkur segir ennfremur:
Um leið og Stjórn kkd. Umfg þakkar Friðriki fyrir samstarfið óskar hún honum alls hins besta í framtíðinni. Friðrik er að mati stjórninnar einn hæfasti þjálfari landsins og þótt titlarnir hafi látið á sér standa var Grindavík oft og tíðum ansi nærri þeim og spiluðu skemmtilegan körfubolta.
Vonast er til að nýr þjálfari verði ráðinn sem fyrst sem byggir liðið upp að nýju en sem fyrr er takmarkið alltaf sett í hæstu hæðir.