C lið Stjörnunnar varð á dögunum meistari í 3. deild 10. flokk drengja eftir sigur á B liði Selfoss í úrslitaleik, 63-83.
Atkvæðamestur fyrir Stjörnuna í leiknum var Atli Hrafn Hjartarson með 31 stig, 9 fráköst, 5 stoðsendingar og 9 stolna bolta.
Fyrir Selfoss var það Benjamín Rökkvi Sigvaldason sem dró vagninn með 14 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu með þjálfara sínum Snorra Erni Arnaldssyni.