Verðlaunahátíð KKÍ fór fram í hádeginu í dag, en þar voru bestu leikmenn og þjálfarar 2021-22 tímabilsins heiðraðir. Kosið var af þjálfurum, fyrirliðum og formönnum deildanna eftir að deildarkeppni lauk, en tekið er fram að þá er úrslitakeppnin að sjálfsögðu ekki inni í myndinni hjá þeim er kjósa.
Karfan spjallaði við leikmann nýkrýndra Íslandsmeistara Vals Kristófer Acox eftir að hann tók við verðlaununum sem leikmaður tímabilsins, en þetta er í þriðja skiptið á fimm árum sem hann tekur við þeim.
Mynd / KKÍ