Valur lagði Tindastól í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna í Subway deild karla, 84-79. Valsmenn því komnir með yfirhöndina í einvíginu 2-1 og þurfa aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Karfan spjallaði við Hjálmar Stefánsson leikmann Vals eftir leik í Origo Höllinni.