Dedrick Basile hefur á nýjan leik samið við Njarðvík og mun leika með liðinu í Subway deild karla út næsta tímabil 2022-23.
Dedrick kom upphaflega til Íslands fyrir síðasta tímabil til Þórs Akureyri, en fyrir yfirstandandi tímabil skipti hann yfir til Njarðvíkur. Njarðvík vann bæði bikartitil í upphafi leiktíðarinnar og deildarmeistaratitil Subway deildarinnar í vetur og var Dedrick einn besti leikmaður liðsins með 18 stig og 8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Tilkynning:
Leikstjórnandinn Dedrick Dieon Basile hefur framlengt samningi sínum við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og snýr því aftur í baráttuna í Subwaydeild karla tímabilið 2022-2023. Basile sem í gær hélt í frí til Bandaríkjanna hafði það sitt síðasta verk í bili hér á Íslandi að skrifa undir nýjan samning með Krístínu Örlygsdóttur formanni KKD UMFN.
Á tímabilinu leiddi Basile liðið í stigaskori með 18,3 stig að meðaltali í leik og leiddi liðið líka í flestum stoðsendingum með 7,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann varð ellefti stigahæsti leikmaður deildarinnar og leiddi deildina alla í stoðsendingum og þriðji framlagshæstur í deild með 23,86 framlagsstig að meðaltali í leik. Þá leiddi Dedrick einnig deildina í flestum stolnum boltum að meðaltali í leik eð 2,31.
„Ég er mjög ánægður að vera að koma aftur en mér líður eins og við eigum óklárað verkefni fyrir höndum. Mig langar að koma aftur til þess að eltast við titilinn og mér fannst eins og besta leiðin til þess sé að koma aftur til Njarðvíkur. Áður en ég kom hingað langaði mig að sanna mig í sigurliði, við kláruðum 75% af verkinu og nú er bara að binda endahnútinn. Að spila með þessum reynslumiklu leikmönnum bætti mig mikið sem leikmann og var frábært skref á mínum ferli,“ sagði Dedrick í samtali við UMFN.is