Njarðvík lagði Tindastól í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Subway deildar karla, 93-75. Eftir leikinn leiða Stólarnir einvígið enn 2-1 og geta með sigri í næsta leik tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn Val. Fari svo að Njarðvík vinni leikinn á Króknum komandi laugardag 30. apríl, verður oddaleikur í Ljónagryfjunni þann 3. maí.
Njarðvík FB spjallaði við Nicolas Richotti leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.