Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í dag tillögur Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi íþróttamanna fyrir árið 2011.
Samtals fékk Körfuknattleikssamband Íslands úthlutað 1,6 milljónum króna. Ein milljón í Norðurlandamót hjá A-landsliði karla kom úr Afrekssjóði, 500.000 kr. úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi í landsliðsverkefni yngri landsliða og 100.000 krónur í sérverkefni fyrir hávaxna leikmenn.
Alls var úthlutun ÍSÍ í dag 56.140.000 kr. Rúmlega 45 milljónum var úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ og um 10 milljónir komu úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi.
Mynd/ [email protected] / A-landslið Íslands hlaut eina milljón króna úr Afrekssjóði í dag.