spot_img
HomeFréttirSnæfell deildarmeistari í unglingaflokki kvenna

Snæfell deildarmeistari í unglingaflokki kvenna

 
Ef gullkálfurinn Ingi Þór Steinþórsson er að þjálfa er líklegt að gull verði niðurstaðan hjá viðkomandi, a.m.k. er því svo farið með unglingaflokk Snæfellskvenna sem hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í flokknum. Hólmarar hafa enn ekki tapað leik í unglingaflokki kvenna og urðu einnig bikarmeistarar á dögunum.
Snæfell lagði Hauka 65-47 í síðasta leik sínum í unglingaflokki og hefur því unnið alla átta leiki sína í venjulegri deildarkeppni. Þrjú lið eiga eftir að spila tvo leiki í flokknum áður en deildarkeppninni lýkur.
 
 
Ljósmynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Ósigraðar Snæfellskonur í unglingaflokki kvenna.
Fréttir
- Auglýsing -