spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaHöttur lagði Álftanes í fyrsta leik úrslita fyrstu deildarinnar

Höttur lagði Álftanes í fyrsta leik úrslita fyrstu deildarinnar

Úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla fórr af stað í kvöld þegar að Höttur lagði Álftanes á Egilsstöðum 102-97.

Höttur því komnir með yfirhöndina í einvíginu, 1-0, en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í Subway deildinni. Áður höfðu Haukar tryggt sér hitt sætið, beint upp, með því að vinna deildarkeppni fyrstu deildarinnar.

Atkvæðamestur fyrir Hött í leiknum var Timothy Guers með 39 stig og 6 fráköst.

Fyrir Álftanes var Friðrik Anton Jónsson atkvæðamestur með 23 stig og 15 fráköst.

Næsti leikur liðanna er þann 19. apríl í Forsetahöllinni á Álftanesi.

Tölfræði leiks

Höttur 102 – 97 Álftanes

Höttur: Timothy Guers 39/6 fráköst, Matej Karlovic 15/7 stoðsendingar, Adam Eiður Ásgeirsson 14, David Guardia Ramos 11/5 fráköst, Juan Luis Navarro 8/6 fráköst/7 stoðsendingar, Arturo Fernandez Rodriguez 6, Matija Jokic 3, Brynjar Snaer Gretarsson 3, Sigmar Hákonarson 3, Andri Björn Svansson 0, Sævar Elí Jóhannsson 0, Sigurjón Trausti G. Hjarðar 0.


Álftanes: Friðrik Anton Jónsson 23/15 fráköst, Sinisa Bilic 23/6 fráköst, Cedrick Taylor Bowen 16/5 fráköst, Dino Stipcic 13/7 fráköst/8 stoðsendingar, Eysteinn Bjarni Ævarsson 12/7 fráköst, Kristján Örn Ómarsson 5, Ragnar Jósef Ragnarsson 3, Steinar Snær Guðmundsson 2, Grímkell Orri Sigurþórsson 0, Ásmundur Hrafn Magnússon 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0.

Umfjöllun / Pétur Guðmundsson

Fréttir
- Auglýsing -