Búið er að velja U15 ára landslið drengja og stúlkna, en Snorri Örn Arnaldsson og Tómas Holton þjálfarar, hafa valið 12 leikmenn sem munu taka þátt í sterku móti í Kaupmannahöfn í sumar. www.kki.is greinir frá.
Ísland hefur tekið þátt undanfarin ár og sigruðu meðal annars mótið fyrir tveimur árum í flokki drengja en mótið mun vera fyrir drengi og stúlkur í fyrsta sinn í ár. Síðasta ár léku stelpurnar nokkrar leiki við jafnöldrur sínar í danska liðinu.
U15 er fyrsta stig í landsliðsstarfi KKÍ og undanfari U16 liðanna sem taka þátt í Norðurlandamótinu ár hvert.
Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum:
U15 drengja
Atli Þórsson • Fjölnir
Daði Lár Jónsson • Stjarnan
Gunnar Ingi Harðarson • Ármann
Helgi Rúnar Björnsson • Stjarnan
Hilmir Kristjánsson • Grindavík
Hinrik Guðbjartsson • Grindavík
Hlynur Logi Víkingsson • Ármann
Högni Fjalarsson • KR
Jón Axel Guðmundsson • Grindavík
Kristján Leifur Sverrisson • Haukar
Pétur Rúnar Birgisson • Tindastóll
Vilhjálmur Kári Jensson • KR
Þjálfari: Snorri Örn Arnaldsson
U15 stúlkna
Andrea Rán Hauksdóttir • Breiðablik
Bríet Sif Hinriksdóttir • Keflavík
Elsa Rún Karlsdóttir • Valur
Eva Margrét Kristjánsdóttir • KFÍ
Guðlaug Björt Júlíusdóttir • Njarðvík
Helena Ósk Árnadóttir • Keflavík
Ingibjörg Sigurðardóttir • Grindavík
Julia Lane Figeroa Sicat • Grindavík
Margrét Hrund Arnardóttir • Hrunamenn
Nína Jenný Kristjánsdóttir • Hekla
Sandra Lind Þrastardóttir • Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir • Keflavík
Þjálfari: Tómas Holton
Ljósmynd/ Snorri Örn Arnaldsson er landsliðsþjálfari U 15 ára drengja.