spot_img
HomeFréttirTveir Bandaríkjamenn leyfðir að nýju: A og B riðill leggst af í...

Tveir Bandaríkjamenn leyfðir að nýju: A og B riðill leggst af í IEX kvenna

 
Þó nokkrar breytingar urðu á körfuboltalandslaginu hérlendis eftir Körfuknattleiksþing KKÍ í Skagafirði um helgina. Helst ber að nefna að tveir Bandaríkjamenn verða leyfðir á næstu leiktíð og þá verður leiki fjórföld umferð í Iceland Express-deild kvenna í stað tveggja. A og B skiptingu deildarinnar fellur niður. Leikin verður fjögurra liða úrslitakeppni í stað sex.
Ekki verður fjölgað leikjum í Iceland Express-deild karla
Ekki verður fjölgað liðum í 1. deild karla
Breytingar verða á Lengjubikar karla(Deildarbikar) – Nánar hægt að lesa um þetta á kki.is
Breytingar verða á Lengjubikar kvenna(Deildarbikar) – Nánar hægt að lesa um þetta á kki.is
 
Fyrir þinginu lá tillaga þess efnis að takmarka fjölda útlendinga í deildarkeppni meistaraflokka karla og kvenna. Miklar umræður voru um kosti og galla þess að takmarka þann fjölda útlendinga sem er inná vellinum hverju sinni. Kosið var um tillöguna sem hefur verið nefnd 3 2 en hún snérist um það að hverju sinni mátti þjálfari ekki hafa fleiri en tvo útlendinga inná hverju sinni. Óskað var eftir skriflegri atkvæðagreiðslu um málið sem er sjaldgæft því venjulega er kosið með handauppréttingu. Skrifleg atkvæðagreiðsla er leynileg og að lokinni talningu atkvæða var ljóst að skoðanaskipti þingfulltrúa var töluverð en atkvæðin féllu jöfn 43-43 og þrír seðlar voru auðir. Var tillagan því felld vegna þess að hún fékk ekki meirihluta atkvæða.
 
Í kjölfarið á þessu var greitt atkvæði um tillögu þess efnis að leyfa tvo erlenda leikmenn í hverju liði. Það þýðir að lið mega ráða til sín tvo bandaríska leikmenn og tefla þeim fram í sama leik, en áður var það óheimilt og aðeins mátti hafa einn bandarískan leikmann í liðinu. Var þessi tillaga samþykkt með góðum meirihluta atkvæða.
 
Gerðar voru breytingar á Lengjubikar karla og kvenna og verða bæði mót með breyttu sniði næsta vetur. Í Lengjubikar karla verður keppnin með 16 liðum, öllum liðum efstu deildar ásamt fjórum liðum úr 1. deild. Verður liðunum skipt í styrkleikaflokka, fjögur lið í hverjum styrkleikaflokki. Dregið verður í riðla og leikið fyrir áramót með úrslitum hinna fjögurra fræknu. Leikirnir verða eftir að Íslandsmótið hefst. Í
 
Lengjubikar kvenna verður keppni 10 liða. Öll liðin úr Iceland Express-deild ásamt tveimur úr 1. deild kvenna. Leikið verður í tveimur riðlum, fimm lið í hvorum riðli og verður ein umferð leikin þar sem allir spila við alla. Lengjubikar kvenna klárast áður en Íslandsmótið hefst.
 
Óbreytt keppnisfyrirkomulag verður í Iceland Express-deild karla og ekki verður fjölgað liðum í 1. deild karla.
 
Tillaga þess efnis að fella niður reglugerð um sameiginleg lið fékk ekki brautargengi og því stendur hún.
 
Tillaga þess efnis að taka upp 3-dómara kerfi í Iceland Express-deild karla var felld.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -