Sigurður Orri Hafþórsson mun leika með KFÍ í 1. deild karla á næstu leiktíð. Frá þessu er greint á www.kfi.is Sigurður lék með Laugdælum á síðustu leiktíð þar sem hann var með 14 stig og 2,9 fráköst að meðaltali í leik.
Fréttin á heimasíðu KFÍ:
Á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga skrifaði Sigurður Orri Hafþórsson undir samning við KFÍ. Drengurinn var ekki lengi að koma sér í gírinn og mætti til vinnu við 17. júní hátíðarhöldin með nýjum félögum sínum úr KFÍ. Sigurður lék á síðasta ári með Laugdælum með Pétri Má þjálfara og eltir hann hingað í sæluna. Hann var með 14 stig í leik á tæpum 30 mínútum og það gleður okkur mjög að fá hann í hópinn. Velkominn í KFÍ Sigurður Orri.