Í gær komust Tyrkir og Rússar í úrslitaleik EM kvenna í Póllandi. Tyrkirnir lögðu evrópumeistara Frakka 66-62 í hörkuleik sem var framlengdur á meðan Rússarnir unnu stóran sigur á Tékkum 85-53.
Það eru því Rússar og Tyrkir sem leika til úrslita en úrslitaleikurinn er á sunnudag.
Frakkland og Tékkland keppa um bronsið og leikið er á sunnudag.
Mynd: Úr leik Tyrkja og Frakka – fibaeurope.com