10. flokkur Njarðvíkinga tryggðu sér sigur á San Marino Cup með 73-66 sigri gegn U16 ára landsliði San Marino í spennuleik og miklum hita í gær. Grænir sigruðu alla þrjá andstæðinga sína í U16 en töpuðu tveimur leikjum, gegn U18 liðum en í báðum tilvikum var um hörkuleiki að ræða.
Nánar má lesa um afrek Njarðvíkinga hér.
Mynd af sigurliði Njarðvíkinga: Sigurvegarar San Marino Cup U16: Efri röð frá vinstri: Árni Brynjólfur Hjaltason fararstjóri, Theódór Már Guðmundsson, Tómas Orri Grétarsson, Maciej Baginski, Brynjar Þór Guðnason, Magni Þór Jónsson, Teitur Árni Ingólfsson, Einar Árni Jóhannsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Friðrik Árnason, Atli Freyr Kristjánsson, Stefán Jason Taylor, Atli Marcher Pálsson, Erlingur Þór Gunnarsson, Baldvin Lárus Sigurbjartsson.