spot_img
HomeFréttirShouse áfram í Garðabæ: Ánægðir að fá hann aftur segir formaðurinn

Shouse áfram í Garðabæ: Ánægðir að fá hann aftur segir formaðurinn

 
Það er ljóst að Justin Shouse mun leika sitt fjórða tímabil með Stjörnunni, en samningar náðust við Justin víkunni. Eins og margir vita fékk Justin íslenskan ríkisborgararétt í júní síðastliðnum. www.stjarnan-karfa.is greinir frá.
Justin kemur til með að þjálfa yngri flokka hjá deildinni eins og áður, enda er hann afar vinsæll meðal yngri iðkenda Stjörnunnar og hefur gengið afar vel í þjálfun frá því hann kom til liðs við Stjörnuna árið 2008.
 
Justin sagðist afar spenntur fyrir tímabilinu í samtali við fréttaritara stjarnan-karfa.is og leist vel á komandi vetur með Stjörnunni en á síðustu leiktíð stýrði hann Stjörnunni inn í úrslit gegn KR sem varð Íslandsmeistari í þremur leikjum.
 
,,Við erum bara ánægðir að fá Justin aftur. Hann er þekkt stærð í íslenskum körfubolta og æfir af krafti fyrir tímabilið og ætlar að koma í toppformi. Hann vill alveg örugglega gera eina atlögu enn að titlinum enda komist nálægt honum tvisvar,“ sagði Gunnar Kristinn Sigurðsson formaður KKD Stjörnunnar í snörpu samtali við Karfan.is.
Fréttir
- Auglýsing -