spot_img
HomeFréttirIcelandic Water Holdings í lið með Þórsurum

Icelandic Water Holdings í lið með Þórsurum

 
Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur gert þriggja ára samstarfssamning við fyrirtækið Icelandic Water Holdings og er fyrirtækið nú öflugur styrktaraðili úrvalsdeildarliðs Þórs. Jón Ólafsson og Jóhanna Hjartardóttir undirrituðu samkomulag þess efnis að viðstöddu meistaraflokksliði Þórs í íþróttamiðstöð Þorlákshafnar þriðjudaginn 18. október.
Meistaraflokkur Þórs mun leika í búningum með auglýsingu frá fyrirtækinu og í allri fjölmiðlaumfjöllun og auglýsingum á viðburðum deildarinnar verður íþróttahúsið kallað “Icelandic Glacial höllin”.
 
Icelandic Water Holdings ehf. er átöppunarverksmiðja fyrir vatn í landi Hlíðarenda í Ölfusi og er í eigu Jóns Ólafssonar.
 
Samningur þessi er mjög mikilvægur fyrir deildina og er ætlað að efla samstarf milli fyrirtækisins og Körfuknattleiksdeildar Umf. Þórs og um leið að tryggja öflugt íþróttastarf segir í tilkynningu frá KKD Þórs í Þorlákshöfn.
 
Mynd/ Hjalti Vignisson
Fréttir
- Auglýsing -