Undanúrslit fyrstu deildar karla rúlluðu af stað í kvöld með tveimur leikjum.
Áður höfðu Haukar tryggt sig beint upp með því að enda efst í deildinni, en liðin í sætum tvö til fimm leika úrslitakeppni um hitt sætið í Subway deildinni á komandi tímabili.
Báðar undanúrslitaviðureignirnar fóru af stað í kvöld, þar sem að Höttur (2) lagði Fjölni (5) annars vegar, en hinsvegar vann Sindri (3) lið Álftanes (4)
Vinna þarf þrjá leiki í undanúrslitunum til að komast í úrslitaeinvígið.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla – Undanúrslit
Höttur 107 – 106 Fjölnir
Höttur leiðir einvígið 1-0
Sindri 98 – 90 Álftanes
Sindri leiðir einvígið 1-0