Njarðvíkingar eru deildarmeistarar í Subwaydeild karla eftir spennusigur á nágrönnum sínum úr Keflavík 98-93. Dedrick Basile fór mikinn fyrir heimamenn með 25 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar. Sigur Njarðvíkinga í deildinni er þeirra fyrsti deilarmeistaratitill síðan 2007.
Karfan spjallaði við Hörð Axel Vilhjálmsson leikmann Keflavíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.
Viðtal / SBS