spot_img
HomeFréttirDregið í Evrópukeppni landsliða á sunnudag

Dregið í Evrópukeppni landsliða á sunnudag

Á sunnudaginn verður dregið hjá FIBA Europe í riðla fyrir komandi Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik. Það verður því spennandi að sjá að honum loknum með hvaða þjóðum við munum leika til að komast á EM í Slóveníu 2013. www.kki.is greinir frá.
Ísland mun leika í riðli með fimm öðrum þjóðum, einni úr hverjum styrkleikaflokk. Leikið verður heima og að heiman dagana 15. ágúst til 11. september.
 
Dregið verður í beinni útsendingu á vef www.fibaeurope.com á sunnudaginn kl. 11.45 að íslenskum tíma og verður byrjað að draga í keppni yngri landsliða áður en dregið verður í riðla A-landsliðanna.
 
Styrkleikariðlarnir eru eftirfarandi:
Stykleikaflokkur I: Serbía, Tyrkland, Þýskaland, Finnland, Georgía, Króatía.
Stykleikaflokkur II: Úkraína, Búlgaría, Pólland, Bosnía, Ísrael, Ítalía.
Stykleikaflokkur III: Svartfjallaland, Lettland, Belgía, Portúgal, Holland, Svíþjóð.
Stykleikaflokkur IV: Tékkland, Eistland, Holland, Sviss, Austurríki, Aserbaídsjan.
Stykleikaflokkur V: Hvíta Rússland, Slóvakía, Rúmenía, Albanía, Lúxemborg, Kýpur.
Stykleikaflokkur VI: Ísland.
 
www.kki.is
 
  
Fréttir
- Auglýsing -