spot_img
HomeFréttirUmfjöllun: Sannfærandi sigur Skallagríms á ÍG

Umfjöllun: Sannfærandi sigur Skallagríms á ÍG

 Í gærkvöldi áttust við ÍG og Skallagrímur í Grindavík og ljóst var á mætingunni á leikinn að hitt stórliðið í bæjarfélaginu var að spila mikilvægan leik í DHL-höllinni á sama tíma. Leikur ÍG og Skallagríms var jafn og skemmtilegur í upphafi en Skallagrímur var fljótari að finna taktinn og með 11-0 áhlaupi snemma í leiknum komust þeir í 5-15. Eftir það jafnaðist leikurinn aðeins út og var staðan eftir fyrsta leikhluta 13-21 fyrir Skallagrím. Stigahæstur hjá Skallagrím var Dominique Holmes með 6 stig og hjá Grindavík var Haraldur Jón Jóhannesson með 5 stig. Skallagrímur var að nýta allan mannskapinn sinn og voru 10 leikmenn búnir að spila strax í fyrsta leikhluta.

Annar leikhluti var svipaður þeim fyrri. Pálmi Þór Sævarsson þjálfari Skallagríms var duglegur að skipta leikmönnum inn og út á meðan ÍG menn höfðu ekki úr eins mikilli breidd að spila. Leikurinn jafnaðist þó aðeins en ÍG tókst aldrei að minnka muninn til að hleypa meiri spennu í leikinn. Staðan í hálfleik var 30-42 fyrir Skallagrím. Stigahæstir hjá Skallagrími í hálfleik voru Dominique Holmes með 14 stig og Lloyd Harrison með 7 stig. Hjá ÍG var Ásgeir Ásgeirsson með 9 stig og Guðmundur Bragason með 7 stig.

12 stig eru almennt talinn vera lítill munur í körfubolta en það var ljóst strax í upphafi 3ja leikhluta að ÍG myndi ekki takast að minnka muninn. Í staðinn jók Skallagrímur muninn hægt og rólega í frekar óspennandi leik. Munurinn eftir 3ja leikhluta var orðinn 21 stig, 45-66 fyrir Skallagrím. Fjórði leikhluti var formsatriði og lauk leiknum með 23 stiga sigri Skallagríms, 58-81.

Stigahæstir hjá Skallagrím voru Dominique Holmes með 16 stig og 7 fráköst, Lloyd Harrison með 13 stig, 6 stoðsendingar og 6 fráköst, Sigurður Þórarinsson með 13 stig og 6 fráköst og Sigmar Egilsson með 10 stig.

Hjá ÍG átti Guðmundur Bragason góðan leik með 14 stig og 13 fráköst (9 í sókn) og Ásgeir Ásgeirsson spilaði af miklum krafti og skoraði 16 stig og tók 11 fráköst. 

Tilþrif leiksins átti knattspyrnumaðurinn knái Orri Freyr Hjaltalín en í lok annars leikhluta splæsti hann í tvö glæsileg blokk sem skemmtu þeim fáu áhorfendum sem mættir voru á leikinn

Texti: Bryndís Gunnlaugsdóttir

Mynd: Lioyd Harrison sem skoraði 13 stig, gaf 6 stoðsendingar og hirti 6 fráköst fyrir Skallagrím

Fréttir
- Auglýsing -