Martin Hermannsson og Valencia máttu þola tap í kvöld fyrir Cedevita Olimija Ljubljana í EuroCup, 82-76.
Eftir leikinn er Valencia í 2. sæti B deild keppninnar með 11 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum skilaði Martin 16 stigum, frákasti, 6 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Martins og Valencia í keppninni er þann 5. apríl gegn Ulm.