spot_img
HomeFréttirÞór Þ. sigldi þessu heim í fjórða (umfjöllun)

Þór Þ. sigldi þessu heim í fjórða (umfjöllun)

 Þór frá Þorlákshöfn sótti 2 stig á Hlíðarenda fyrr í kvöld með 17 stiga sigri, 73-90.  Leikurinn var jafn og nokkuð spennandi fyrstu þrjá leikhluta leiksins en gestirnir tóku allan vafa af í þeim fjórða og sigldu nokkuð öruggum sigri heim.  Matthew Harston var stigahæstur í liði Þórs með 25 stig og 14 fráköst sem getur ekki talist slæmt.  Næstir voru það Darren Govens sem fékk afmælissönginn frá stuðningsmönnum Þórs í kvöld, en hann skoraði 25 stig og Guðmundur Jónasson bætti 18 stigum við.  Hjá Val var Garrison Johnson stigahæstur með 23 stig en næstir voru Birgir Pétursson með 14 stig og 8 fráköst og Hamid Dicko einnig með 14 stig.  
 Gestirnir frá Þorlákshöfn settu 6 fyrstu stig leiksins áður en Valsmenn náðu að svara sem skoruðu 4 næstu stig úr hröðum sóknum eftir frákast á sínum enda vallarins.  Vallarklukkan tók þá leikinn í sínar hendur og þurfti að gera þónokkra pásu á leiknum á meðan hlúð var að sárum hennar.  Valsmenn áttu fyrsti 2 stigin eftir pásuna og voru því búnir að jafna leikinn, 6-6 þegar þrjár mínútur voru liðnar á leikklukkunni.  Valsmenn komust svo yfir í fyrsta skiptið í leiknum, 10-9 um mínútu síðar.  Birgir Pétursson hafði þá skorað 6 af 10 stigum Vals en hann nýtti færin sín mjög vel.  Birgir og Igor Tratnik náðu virkilega vel saman undir körfunni og gáfu ekki tommu eftir í frákastabaráttunni og varnarleiknum sem skilaði sér vel fyrir Valsmenn.  Þegar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum höfðu Valsmenn 5 stiga forskot, 14-9.  Liðin fóru mikinn í sóknarleiknum á næstu mínútum og þegar 2 og hálf mínúta var eftir höfðu heimamenn 8 stiga forskot, 22-14.  Gestirnir minnkuðu muninn smám saman og áttu lokaskot leikhlutans þar sem brotið var á Guðmundin Jónassyni í þriggja stiga skoti og nýtti hann 2 af þremur skotunum.  Það munaði því 6 stigum á liðunum þegar fyrsti leikhluti var líðinn, 24-18.  

Gestirnir gjörsamlega keyrðu yfir Valsmenn í byrjun annars leikhluta og höfðu skorað 13 stig áður en Valsmenn náðu að svara og Ágúst Björgvinsson tók leikhlé fyrir Valsmenn.  Vallarklukku og live-statti bar ekki saman um tölurnar en samkvæmt vallarklukkunni höfðu Þórsarar þá náð 6 stiga forskoti, 24-31.  Það var svo August Magnus Bracey sem setti fyrstu stig Valsmann í leikhlutanum eftir rétt tæplega fjórar mínútur af leik, 27-35.  Þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu gestirnir 10 stiga forskot, 30-40.  Bæði lið spiluðu  flottan varnarleik næstu mínútur og gekk því illa að koma boltanum ofaní.  Þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum hafði Þór yfir, 36-43.  Valsmenn tóku leikhlé þegar rúm mínúta var eftir af leikhlutanum, 36-43.  Hvorugu liðinu tókst að skora fram að hálfleik og því munaði enn 7 stigum þegar flautað var til loka leikhlutans.  Blagoj Janev og Garrison Johnson tókst þó báðum að næla sér  í tæknivillu á leiðinni inní klefa í hálfleik fyrir kjaftbrúk.  

Stigahæstur í hálfleik í liði Þórs var Guðmundur Jónasson með 12 stig en næstir voru Darren Govens með 11 stig og Matthew James  Hairston með 9 stig og 8 fráköst.  

Hjá Val var Hamid Dicko stigahæstur með 12 stig en næstir voru Garrison Johnson og Birgir Pétursson með 6 stig hvor.  

Liðin skiptust á að skora á fyrstu mínútunum þriðja leikhluta en þegar fjórar mínútur voru liðnar höfðu gestirnir 6 stiga forskot, 42-48.  Þórsarar hleyptu Valsmönnu  þó ekki nær en það og í hvert skipti sem heimamenn virtust ætla að minnka muninn settu Þórsarar í gírinn og bættu í.  Þegar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum hafði Þór 7 stiga forskot, 48-55.  Þegar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta höfðu gestirnir aftur náð 10 stiga forskoti, 50-60.  Valsmenn svöruðu þó með næstu 7 stigum leiksins og munaði því aðeins 3 stigum á liðunum þegar hálf mínúta var eftir, 57-60.  Þór svaraði um hæl með 5 stigum í röð og það munaði því enn 7 stigum þegar flautað var til loka leikhlutans, 57-65.  

Það var alveg ljóst á leik þórsara í upphafi fjórða leikhluta að þeir ætluðu sér ekki að gefa neitt frá sér í þessum leik.  Þegar tæplega þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum höfðu þeir skorað 10 stig gegn 5 stigum Valsmanna og Ágúst Björgvinsson sá sig knúinn að taka leikhlé, 62-75.  

Á meðan Græni Drekinn söng afmælissönginn fyrir Darren Govens hélt hann áfram að tryggja sínu liði stigin tvö.  Þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu gestirnir náð forskotinu upp í 18 stig, 64-82, og stefndu rakleiðis til sigurs.  Valsmenn löguðu sína stöðu aðeins og höfðu náð muninum niður í 14 stig þegar tvær mínútur voru eftir, 71-85.  Minni spámenn fengu að spreyta sig hjá báðum liðum þegar leið á og leikurinn breyttist því töluvert þegar leið á.  Þór fór á endanum með 17 stiga sigur, 73-90.

Tölfræði leiksins 

Mynd: [email protected]

Umfjöllun: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -