Knattspyrnumaðurinn Heiðar Helguson var í kvöld útnefndur íþróttamaður ársins 2011 í kjöri samtaka íþróttafréttamanna. Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson leikmaður Sundsvall Dragons hafnaði í 3. sæti en hann var á dögunum útnefndur Körfuknattleiksmaður ársins 2011. Karfan.is óskar íþróttamönnunum öllum á listanum í kjörinu innilega til hamingju með árangur sinn á árinu 2011.
Atkvæðin í kjörinu skiptust svo:
1. Heiðar Helguson knattspyrna 229 stig
2. Ásdís Hjálmsdóttir frjálsíþróttir 199
3. Jakob Örn Sigurðarson körfubolti 161
4. Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrna 145
5. Kolbeinn Sigþórsson knattspyrna 137
6. Þóra B. Helgadóttir knattspyrna 134
7. Aron Pálmarsson handbolti 109
8. Kári Steinn Karlsson frjálsíþróttir 79
9. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir handbolti 74
10. Ólafur Björn Loftsson golf 65
11. Þormóður Árni Jónsson júdó 52
12. Björgvin Páll Gústavsson handbolti 34
13. Arnór Atlason handbolti 28
14. Hafþór Harðarson keila 27
15. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir handbolti 21
16.-17. Snorri Steinn Guðjónsson handbolti 20
16.-17. Thelma Rut Hermannsdóttir fimleikar 20
18. Eygló Ósk Gústafsdóttir sund 15
19. Alexander Petersson handbolti 10
20.-22. Hlynur Bæringsson körfubolti 6
20.-22. Jakob Jóhann Sveinsson sund 6
20.-22. Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrna 6
23. Jón Margeir Sverrisson íþróttir fatlaðra 5
24.-26. Annie Mist Þórisdóttir lyftingar 4
24.-26. Ragna Ingólfsdóttir badminton 4
24.-26. Karen Axelsdóttir þríþraut 4
27.-29. Erla Dögg Haraldsdóttir sund 3
27.-29. Björgvin Björgvinsson skíði 3
27.-29. Aðalheiður Rósa Harðardóttir karate 3
30. Karen Knútsdóttir handbolti 2
31. Jóhann Skúlason hestaíþróttir 1