Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC máttu þola þriggja stiga tap í dag fyrir Girona í Leb Oro deildinni á Spáni, 91-88.
Eftir leikinn er Acunsa í 13. sæti deildarinnar með 36 stig.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 20 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 31. mars gegn Oviedo.