Snæfell tókst það sem margir töldu ekki hægt þegar þeir hefndu fyrir bikarleikinn á dögunum og stálu 2 stigum í DHL höllinni í kvöld. KR leiddi lengi framan af leik og höfðu mest 14 stiga forskot á tímabili. Snæfell var þó aldrei langt undan og komu sér inní leikinn með góðum kafla í upphafi þriðja leikhluta og svo aftur í upphafi fjórða leikhluta þar sem þeir náðu sínu stærsta forskoti í leiknum, 6 stig. Snæfell hafði svo betur á lokakaflanum þar sem segja má að lykilmenn KR hafi hreinlega brugðist en þeir urðu sekir um klaufaleg mistök á lokakaflanum. Snæfell vann því með einu stigi, 93-94, og koma sér vel fyrir í miðjumoði deildarinnar með 14 stig, aðeins tveimur stigum frá KR sem sitja í öðru sæti ásamt þremur öðrum liðum með 16 stig.
KR byrjaði leikinn ögn betur og með flottum varnarleik komust þeir i 6-2 eftir þrjár mínútur. Snæfellingar voru að taka erfið skot sem féllu ekki með þeim. Þegar Snæfell fann opna manninn fyrir utan og setti niður 6 stig í röð komust þeir yfir í fyrsta sinn, 10-12. Liðin skiptust á stigum næstu mínúturnar og þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum leiddi Snæfell, 14-16. KR átti góðan kafla á lokamínútunum og setti 8 stig gegn tveimur stigum, 22-18. Snæfell átti hins vegar lokaorðið þegar Hafþór Ingi Gunnarsson setti flautukörfu og minnkaði muninn í 2 stig, 22-20.
KR byrjaði annan leikhluta af krafti og þegar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum höfðu þeir náð forskotinu upp í 7 stig, 32-25. Stigin dreifðust vel hjá heimamönnum en þá höfðu 8 leikmenn skorað fyrir KR. Á meðan opin skot voru að geiga hjá Snæfell fór allt ofaní hjá heimamönnum, Ingi Þór fékk nóg og tók leikhlé fyrir Snæfell þegar leikhlutinn var hálfnaður, 42-29. Snæfell tókst að rétta sinn hlut þegar leið á leikhlutan og þegar 3 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik munaði 8 stigum, 44-36. KR virtist þó alltaf finna auðveldu leiðina að körfunni á meðan sóknarleikur Snæfells átti í mun meiri erfiðleikum með að finna glufur á varnarleik KR. Snæfell tókst því ekki að minnka muninn meira en svo í fyrri hálfleik og KR leiddi með 11 stigum, 53-42.
Stigahæstur í hálfleik fyrir KR var Robert Ferguson með 13 stig,Dejan Sencanski, Finnur Atli Magnússon og Joshua Brown allir með 9 stig. Hjá Snæfell var troðslumaskínan Quincy Hankins-Cole stigahæstur með 15 stig en næstir voru Hafþór Iingi Gunnarsson með 7 stig og Jón Ólafur Jónsson með 6 stig.
Snæfell vann sig hægt og rólega inní leikinn í þriðja leikhluta. Sóknarleikur gestana fór á blússandi siglingu og þegar þriðji leikhlut var rétt rúmlega hálfnaður höfðu þeir skorað 14 stig gegn 8 stigum KR. Hrafn Kristjánsson tók þá leikhlé fyrir KR, 61-56. Varnarleikur Snæfells í þriðja leikhluta var til fyrirmyndar og það leið ekki á löngu þar til þeir höfðu jafnað leikinn, 64-64, þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leikhlutanum. Ingi Þór Steinþórsson tók leikhlé fyrir Snæfell í næstu sókn. Robert Ferguson fékk mikið högg á hnéið stuttu seinna og þurfti að yfirgefa völlinn til þess að fá aðhlynningu frá sjúkraþjálfara liðsins en hann kom þó aftur inná í byrjun fjórða leikhluta. Marquis Hall fékk sína fjórðu villu á lokasekúndum þriðja leikhluta og í kjölfarið kom Hreggviður Magnússon KR yfir aftur af vítalínunni, 71-70, og þannig stóðu tölur þegar einn leikhluti var eftir.
Snæfell byrjaði fjórða leikhluta mjög vel og fengu nokkur galopin tækifæri. Þar á meðal var glæsileg troðsla frá Quincy Hankins-Cole sem vakti mikla lukku viðstaddra. Þegar tæplega þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta höfðu Snæfellingar náð 6 stiga forskoti á KR, 73-79. Hrafn Kristjánsson tók því leikhlé stuttu seinna en þá höfðu Snæfell ennþá 6 stiga forskot, 75-81. Það var eins og allt í einu hefði verið kveikt á ofnunum í DHL höllinni þegar fjórði leikhlut var hálfnaður. Martin Hermansson setti glæsilegan þrist með Hankins-Cole í andlitinu og stuðningsmenn KR tóku við sér. Liðin skiptust á að setja hverja þriggja stiga körfuna á fætur annari og spennan í húsinu magnaðist með hverju skotinu. Jón Ólafur Jónsson fékk sína fimmtu villu stuttu seinna og í sömu andrá fór Quincy Hankins-Cole útaf vegna meiðsla í fæti. Þegar þrjár mínútur voru eftir höfðu KR-ingar minnkað muninn niður í 2 stig, 87-89. Það var svo viðeigandi að Joshua Brown kom KR yfir af vítalínunni þegar tvær mínútur voru eftir, 90-89. Quincy Hankins-Cole kom þá aftur inná og kom Snæfell aftur yfir með hörku troði, 90-91. Þegar 50 sekúndur voru eftir tók Hrafn Kristjánsson leikhlé fyrir KR en þá höfðu KR hent boltanum frá sér eftir fremur klaufalega sókn. Snæfell svaraði í sömu mynt og henti líka frá sér boltanum í næstu sókn. Marquis Hall kórónaði svo góðan leik sinn í leiknum með því að stela boltanum af Joshua Brown þegar 11 sekúndur voru eftir af leiknum og þar með tryggja Snæfell sigurinn. KR braut fljótt og sendi Ólaf Torfason á línuna sem nýtti annað vítið,90-94. Hreggviður Magnússon átti svo seinasta skot leiksins sem var langt fyrir aftan miðju og ótrúlegt en satt þá söng það í netinu á sömu sekúndu og flautan gall. Eins stig sigur Snæfells því staðreynd en minna mátti ekki muna, 93-94.
Umfjöllun: [email protected]