Igor Tratnik hefur fengið sig lausan frá Val og skrifað undir samning hjá Tindastól en þetta kemur fram á feykir.is nú í dag. Igor Tratnik hefur verið lykilmaður Vals í vetur og í þeim þrettán leikjum sem hann hefur spilað með þeim í vetur hefur hann skorað 15 stig og tekið 10 fráköst að meðaltali á leik.
Tindastóll mun samkvæmt Feykir.is senda Myles Luttman heim og er Igor því ætlað að leysa hans hlutverk.