spot_img
HomeFréttirFeykir.is: Tratnik kemur á Krókinn

Feykir.is: Tratnik kemur á Krókinn

Feykir.is birtir í dag frétt um að Igor Tratnik sé orðinn leikmaður Tindastóls. Segir í frétt á Feyki að samningar um félagsskipti leikmannsins hafi tekist milli Tindastóls og Vals með vinsemd og virðingu. Tratnik verður því löglegur með Stólunum í kvöld gegn Fjölni.
Frétt Feykis.is um málið
 
Nú er það orðið ljóst að hinn umtalaði körfuboltamaður Igor Tratnik kemur á Krókinn og leikur með meistaraflokki Tindastóli það sem eftir er tímabilsins. Samningar um félagsskipti hafa tekist milli Tindastóls og Vals með vinsemd og virðingu og verður hann löglegur strax í dag.
 
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls taldi sig um síðustu helgi vera búna að fá Igor Tratnik í stað Myles Luttman sem sendur var heim og var leikmönnum liðsins tilkynnt um komu kappans. Skrifuð var frétt um málið á Feyki.is sem vakti athygli og undrun stjórnar Vals sem ekki hafði losað leikmanninn undan samningi við liðið og taldi að Tindastóll viðhefði óheiðarleg vinnubrögð í málinu. Heimildir Feykis herma að umboðsmaður Igors hafi um nokkurn tíma leitað að öðru liði fyrir hann og boðið Tindastóli. Ekki var búist við öðru en hann væri laus af þeim sökum og hann því kynntur til sögunnar. Stjórn deildarinnar hefur unnið í því að fá mann í stað Luttman og var m.a. leitað erlendis. Niðurstaðan varð sú að samningar tókust við Val í morgun og er Igor því orðinn liðsmaður Tindastóls.
 
Fjölnir – Tindastóll í kvöld
Tindastóll sækir Fjölni Grafarvogi heim í Dalhús í Iceland Express deild karla í kvöld og eru Skagfirðingar á svæðinu hvattir til að fjölmenna en frítt verður á leikinn. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fyrir þá sem ekki komast verður hann sýndur í Fjölnir TV.
 
www.feykir.is   
Fréttir
- Auglýsing -