Keflavíkurkonur nýttu tækifærið vel í kvöld og juku forskot sitt á toppi Iceland Express deildarinnar með sigri á KR 70:56. Haukar sigruðu svo Hamarstúlkur með 72 stigum gegn 66 og svo voru það Snæfell sem sigruðu Fjölni í hörkuleik 90:88. Meira um leikina síðar