Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson verður ekki með grænum gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld en hann hefur verið frá undanfarið í liði Njarðvíkinga vegna meiðsla í hné.
Á heimasíðu UMFN í dag segir að ekki sé útséð með hvenær Rúnar geti snúið aftur búning. Þá er einnig greint frá því að Jens Valgeir Óskarsson sé frá vegna botnlangaaðgerðar.
www.umfn.is